20.08.1931
Neðri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í C-deild Alþingistíðinda. (2415)

38. mál, vegalög

Jóhann Jósefsson:

Ég vil lýsa því yfir, af því ég á sæti í samgmn., að ég var ekki fylgjandi þeirri till., sem hv. samnm. mínir voru sammála um, að málinu yrði vísað til stj. Það var í fyrsta lagi vegna þess, að ég veit ekkert, hver sú stjórn er, sem til er að vísa. Það væri þá helzt að gera það með það fyrir augum, að vilja ekkert sinna því, en ég treysti mér ekki til að halda því fram, að þessar till., sem fram hafa verið bornar af ýmsum hv. þm., eigi sér svo lítinn stað, að yfirleitt beri að vísa þeim á bug á þennan hátt.