20.08.1931
Neðri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í C-deild Alþingistíðinda. (2426)
38. mál, vegalög
Ólafur Thors:
Það fór þá svo, að meðhjálparinn reyndist betri en presturinn, því að hann mundi þó eftir því, að ekki hafði verið gengið til atkv. um það, hvort tóbakseinkasalan skyldi tekin á dagskrá í gær eða ekki, og þetta mun vera rétt. En eitthvað hefir þó ónáðað samvizku prestsins, því að mestöll ræða hans hneig í þá átt að leiða rök að því, að það væri allt annað, þótt tóbakseinkasalan hefði verið tekin frá fjhn., en að vegalögin séu tekin úr þeirri n., sem hann á sæti i. Ef hv. þm. sýndi ekki í gær afstöðu sína til málsins, þá hefir hann þó ljóslega gert það með ræðu sinni áðan. Það er því óþarfi fyrir hv. þm. Barð. að vera að amast við því, sem ég sagði við hv. 2. þm. Rang., því að hann hefir játað, að hann vildi í gær láta taka málið úr höndum n.
Í tilefni af því, sem hv. 2. þm. Rang. sagði, að það væri ekki rétt hjá mér, að fjhn. hefði haft tóbakseinkasöluna skamma stund til meðferðar, þá vil ég upplýsa það, að málinu var á föstudaginn var vísað til n. Þann dag stóð fundur fram á nótt, og allan næsta dag var þingfundur. Síðan hefir n. haldið tvo fundi til afgreiðslu margra mála, er fyrir lágu, en enn eigi unnizt tími til að afgr. tóbakseinkasöluna. Það stendur því að öllu leyti eins á um þetta mál og hitt, nema hvað samgmn. má vera vandaminna að skapa sér hugmynd um þetta mál.
Ef það er rétt, sem hv. þm. Vestm. segir, að n. sé raunverulega búin að taka afstöðu til málsins, þá er þetta einungis gert til þess að drepa það.