21.08.1931
Efri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (2556)

Stjórnarmyndun

forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil tilkynna það hv. d., að Sigurður Kristinsson atvmrh. hefir í gær fengið lausn frá því embætti, skv. eigin ósk. Hefir konungur samkv. till. minni fallizt á, að hv. 5. landsk., Jónas Jónsson, yrði skipaður dómsmrh., hv. þm. V.-Ísf., Ásgeir Ásgeirsson, fjmrh., en mér hefir verið falið á hendur að veita forstöðu atv.- og samgmrn.