21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1301 í B-deild Alþingistíðinda. (2569)

Stjórnarmyndun

forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég leyfi mér að tilkynna hv. d., að samkv. ósk hans sjálfs hefir Sigurður Kristinsson atvmrh. fengið lausn í gær frá embætti, og jafnframt hefir konungurinn fallizt á till. mína um að skipa hv. 5. landsk. dóms- og kirkjumálaráðh. og hv. þm. V.-Ísf. fjmrh. Mér hefir verið falið á hendur að veita forstöðu atv.- og samgmrn.