04.08.1931
Neðri deild: 20. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1319 í B-deild Alþingistíðinda. (2581)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (JörB):

Ég hét hv. 3. þm. Reykv. því fyrir nokkrum dögum að athuga, hvað liði þeim frv. hv. jafnaðarmanna, sem vísað hefir verið til n. Ég hefi innt formenn hv. n. eftir þessu, en ekki fengið svör frá þeim öllum ennþá. Var það ætlun mín að láta hv. 3. þm. Reykv. þessar upplýsingar í té, þegar ég hefði fengið svör frá öllum nefndunum.