11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1320 í B-deild Alþingistíðinda. (2586)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (JörB):

Ég hefi óskað þess við formenn n., að þeir létu mér í té upplýsingar þær, sem hv. 3. þm. Reykv. spyr um, og hefi ég fengið svör frá sumum þeirra, en ekki öllum. Ég get að vísu séð af gerðabókum einstakra n., hvaða mál hafa verið tekin fyrir, en samt ekki að öllu leyti, hvað liður meðferð mála.

Um annað málið, sem hv. þm. talaði um, veit ég til, að n. er að vinna að því nú. Átti ég tal við formann þeirrar n. í morgun, og býst hann við, að það komi fljótlega fram.