20.08.1931
Efri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1327 í B-deild Alþingistíðinda. (2613)

Afgreiðsla þingmála

Jónas Jónsson:

Ég vildi aðeins upplýsa hv. 2. landsk. um það, að í fjárl. er veitt allmikil upphæð til hafnargerðar á Akranesi, sem eðlilegt er líka, því að þorpið hefir sýnt áhuga og mikinn dugnað í þessu máli, en ekki er hægt að segja, að þar standi neitt upp á þjóðfélagið. Hinu reyndi hv. þm. ekki að mótmæla, að viðkunnanlegra væri, að þessi hv. d. afgreiddi ekki málin rannsóknarlaust, og held ég mér því við mín fyrri ummæli um það efni.