22.08.1931
Efri deild: 38. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1335 í B-deild Alþingistíðinda. (2629)

Afgreiðsla þingmála

Pétur Magnússon [óyfirl.]:

Ég stend aðeins upp til þess að slá því föstu, að hv. 2. landsk. hefir ekki gert neina tilraun til þess að bera af sér þær sakir, sem ég skýrði frá, að á hann væru bornar í bænum, og ég verð að taka það sem viðurkenningu fyrir því, að þessar sakir séu réttar.