19.08.1931
Efri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í B-deild Alþingistíðinda. (285)

1. mál, fjárlög 1932

Jónas Jónsson:

Ég vil aðeins benda á, að þessi till. er orðuð beint sem brtt. og því á að bera hana upp fyrst, enda er það venja í öllum síðuðum þjóðfélögum. Það er því eintóm vitleysa hjá hv. 4. landsk., að fyrst eigi að bera upp hærri upphæðina, úr því hún er ekki í brtt.