22.08.1931
Efri deild: 38. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í B-deild Alþingistíðinda. (377)

2. mál, fjáraukalög 1929

Pétur Magnússon:

Ég vil benda hv. þdm. á, að þótt þessi lög verði talin samþ. og fái staðfestingu konungs, öðlast þau aldrei lagagildi og er því þýðingarlaust að samþ. þau undir þessum kringumstæðum.