11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 669 í B-deild Alþingistíðinda. (409)

3. mál, landsreikningar 1929

Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Þær ályktanir, sem hv. þm. dregur um það, hvaða hugarfar hafi staðið á bak við yfirlýsingu mína í vetur um að ekki skyldi verða gefin út þessi umrædda bók, standa á hans ábyrgð. En um útgáfu bókarinnar var rætt í sambandi við kosningarnar og yfirlýsing mín var gefin í því sambandi og bókin hefir ekki komið út fyrir kosningarnar.