30.07.1931
Efri deild: 16. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í B-deild Alþingistíðinda. (505)

5. mál, verðtollur

Jón Þorláksson:

Ég varð lasinn upp úr því, að n. klofnaði í þessu máli, og þess vegna kom ég því ekki í verk að skila nál., en afhenti þessar brtt. til prentunar fyrir sólarhring síðan. Ég vil mælast til, að annaðhvort verði leyfð afbrigði, að brtt. megi komast að nú, eða þá að málið verði tekið af dagskrá, ef hv. þdm. vilja síður, að þær komist að nú.