19.08.1931
Neðri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í B-deild Alþingistíðinda. (578)
12. mál, ríkisbókhald og endurskoðun
Forseti (JörB):
Mér skildist, að óskað væri, að málið fengi afgreiðslu nú á þessu þingi, og því tók ég það á dagskrá. Hinsvegar skal ég fúslega viðurkenna, að sá tími, sem n. hefir haft til umráða til athugunar á málinu, er svo skammur, að ekki er hægt til þess að ætlast, að hún fengi afgr. það.
Til þess að hliðra til, skal ég fresta málinu á dagskrá í því augnamiði, að takast megi að ná samkomulagi við hv. n. um málið og afgreiðslu þess.