24.07.1931
Neðri deild: 11. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 862 í B-deild Alþingistíðinda. (646)

35. mál, sjóveita í Vestmannaeyjum

Frsm. (Einar Arnórsson):

Það þarf ekki annað en lýsa því einu yfir, að allshn. hefir haft frv. þetta til meðferðar og ekki fundið neitt athugavert við það, og leggur því til einum rómi, að frv. verði samþ. eins og það nú er.