28.07.1931
Neðri deild: 14. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í B-deild Alþingistíðinda. (76)
1. mál, fjárlög 1932
Jónas Þorbergsson:
Það er aðeins til þess að hnekkja staðhæfingum hv. þm. N.-Ísf. um það, að á gerræðisfullan hátt og að ástæðulausu hafi verið hætt við talskeytasendingar loftskeytastöðvarinnar. Ég verð með örfáum orðum að segja gang þessa máls, úr því að hv. þm. varpar fram slíkum ásókunum.
Þessi skeyti voru, eins og mönnum er kunnugt, send í gegnum loftskeytastöðina í Reykjavík og á vegum landssímans. Nú er tvennskonar útvarp í landinu, þannig að þegar þessum skeytum er varpað út, hafa ekki allir útvarpsnotendur fulla vitneskju um, hvaðan þau koma, hvort heldur frá loftskeytastöðinni eða útvarpstöðinni. Þess vegna gerði ég fyrirspurn um það, hvernig á því stæði, að verið væri að senda pólitísk fréttaskeyti í talskeytaformi út um land. Og þegar málið var tekið til athugunar af hæstv. stj., þá gaf landssímastj. þær upplýsingar, að hann gæti ekki samkv. embættisskyldu sinni látið hindra útvörpun þeirra skeyta, sem stöðinni bærust, og yrði að láta útvarpa þeim öllum, hvernig sem þau væru, athugasemdalaust. Þetta er vitanlega rétt álit landssímastjóra, og niðurstaðan varð sú, að landssímastj. óskaði eftir, að hann yrði losaður við að senda þessi skeyti. Ríkisstj. féllst á það af þessum ástæðum og tók fyrir skeytasendingarnar þá þegar, eins og hæstv. forsrh. mun geta borið vitni um, ef hv. dm. vilja bera brigður á þessa frásögn.