24.07.1931
Efri deild: 9. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 915 í B-deild Alþingistíðinda. (832)

53. mál, efnivara til iðnaðar

Flm. (Jón Þorláksson):

Það er ekki ástæða til að fara mörgum orðum um efni þessa frv. að þessu sinni. Í vetur var orðið fullt samkomulag um afgreiðslu þess, og vona ég því, að hv. d. samþ. það, þar sem það er nú borið fram í sömu mynd og áður. Legg ég til, að málinu sé vísað til fjhn.umr. lokinni.