28.07.1931
Neðri deild: 14. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í B-deild Alþingistíðinda. (94)

1. mál, fjárlög 1932

Haraldur Guðmundsson:

Ég skil ósköp vel, hvers vegna hæstv. forseti vill ekki nafnakall. Honum er ekki um að láta það sannast á samherja sína úr sveitakjördæmunum, að þeir greiði atkv. á móti framkvæmdum í kjördæmum sínum.