17.08.1931
Neðri deild: 31. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 948 í B-deild Alþingistíðinda. (958)

25. mál, lendingarbætur á Eyrarbakka

Jóhann Jósefsson:

Síðan ég minntist á frv. hafa menn komið með brtt. við bráðabirgðaákvæðið, og mig undrar, að form. n. skuli ekki verða við tilmælum flm. um að athuga brtt. til 3. umr. Einnig hefir komið fram brtt. við frv. frá form. n., sem flm. telur sig ekki óánægðan með. Ég segi fyrir mitt leyti, að ég mun greiða atkv. með frv., en er á móti brtt., sem fram hafa komið, nema þeirri, er 1. gr. snertir.