20.07.1931
Efri deild: 5. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í D-deild Alþingistíðinda. (989)

6. mál, víxlar vegna sölu síldar

Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Eins og getur um í grg., hefir þessi ábyrgð þegar verið tekin samkv. áskorun frá miðstjórnum flokkanna. Hér er aðeins leitazt eftir að fá þá heimild formlega. Ég vildi leyfa mér að óska, að fjhn. fjalli um það mál. Það er óþarft að fara mörgum orðum um efni málsins; það var hér á ferðinni í vetur og er því kunnugt.