06.05.1932
Neðri deild: 68. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1408 í C-deild Alþingistíðinda. (11178)

284. mál, samvinnufélög

Héðinn Valdimarsson:

Ég er viss um, að eftir framkomu hv. þm. V.-Húnv. í þessu máli mun enginn hv. þdm. trúa því, að hann hafi fengið umboð til þess að flytja hv. allshn. einhver skilaboð fyrir mína hönd. Þetta er eins og annað hjá hv. þm., staðlaust slúður; ég hefi engar óskir látið í ljós um framgang þessa frv. hans og álít, að öxin og jörðin geymi það bezt.