06.05.1932
Neðri deild: 68. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1409 í C-deild Alþingistíðinda. (11185)
284. mál, samvinnufélög
Haraldur Guðmundsson:
Ég get vottað, að það er alveg rétt, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði, að það er réttnefni á þm. V.-Húnv. að kalla hann lygara. Það verður ekki hjá því komizt að nota þetta orð íslenzkrar tungu, þegar það á við. Af því að ég hlustaði á það, sem þessum hv. þm. fór á milli áðan inni í ráðherraherberginu, þá get ég vottað, að hv. 3. þm. Reykv. skýrði rétt frá því, en hv. þm. V.-Húnv. alrangt.