02.03.1932
Efri deild: 18. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1438 í C-deild Alþingistíðinda. (11232)

37. mál, stjórnarskipunarlög

Jakob Möller:

Ég skal lýsa því yfir, að Sjálfstæðisflokkurinn mun skila lista til nefndarkosningar með 2 nöfnum. Ef það er ætlun Framsóknarflokksins að leggja fram lista með 3 nöfnum, þá liggur það í hlutarins eðli, að Sjálfstæðisflokkurinn hefir 2 nöfn á sínum lista.