02.03.1932
Efri deild: 18. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1439 í C-deild Alþingistíðinda. (11237)

37. mál, stjórnarskipunarlög

Forseti (GÓ):

Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa svo mikið við, að skipuð verði 6 manna n. í málið. Ég mun taka til greina þá ósk að fresta nefndarkosningunni til morguns. — Hv. 1. flm. frv. lagði til, að skipuð yrði sérstök 5 manna n. í þetta mál, og fyrst enginn mælir því í gegn, þá skoða ég það samþ.