12.04.1932
Neðri deild: 49. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2384 í B-deild Alþingistíðinda. (11438)
Afgreiðsla þingmála
Forseti (JörB):
Ég ætla, að hv. 3. þm. Reykv. mundi komast að raun um það, ef hann kynnti sér gang fleiri mála hér í þinginu, að Alþýðuflokkurinn hefir ekki orðið afskiptur við hina flokkana um það að koma fram málum sínum.
Að því leyti, sem þetta tekur til mín, þá skil ég ekki, hvernig hv. þm. getur ætlazt til þess, að ég komi fram málum hér í þinginu, því að hv. þm. veit það eins vel og ég, að þetta er ekki á mínu valdi, heldur undir þdm. sjálfum komið. Sjálfur hefi ég lítið notað mér þann rétt, sem mér ber sem öðrum þm. til þess að taka þátt í umr. Hefi ég aðeins talað lítillega í þrem málum, sem ég stend sérstaklega að. Það er því miður ekki á mínu valdi að þoka fram málum, þegar þm. taka þann hátt upp að þaulræða svo flest þau mál, sem fyrir eru tekin, að önnur mega ekki komast að, en með dagskránni hefi ég reynt að benda mönnum á það, hversu mörg mál bíða nú aðgerða þingsins, ef það gæti að einhverju leyti orðið til að koma í veg fyrir þessar löngu umr. Hefi ég látið taka saman lista yfir meðferð þeirra mála allra, sem til þessarar deildar hafa komið, og er sýnt af honum, að það eru ekki fremur mál Alþýðuflokksmanna, sem seint þokast áfram hér í þinginu, heldur en önnur mál, sem þm. úr hinum flokkunum standa að. En það er skiljanlegt, að þeir þm., sem bera fram mál sín hér í þinginu, séu leiðir yfir að sjá, hversu seint afgreiðslu málanna gengur, og vildi ég beina því til þdm., að þeir hér eftir reyndu að greiða betur fyrir afgreiðslu mála, og um n. vænti ég þess, að þær reyni að hraða afgreiðslu þeirra mála, sem þær fá til meðferðar, sem mest að unnt er.
Ég get lýst yfir því, að ef þm. óska eftir að hafa lengri fundarsetur en verið hefir, skal ekki standa á mér að stýra fundum, þó að lengri séu hafðir, en mér hefir þó fundizt svo, þegar ég hefi viljað þreyta fundi fram eftir kvöldum, að þm. væru helzt til ókyrrir í sætum sínum og vildu lítt sinna málum, og enda ekki ósjaldan komið fyrir, að þm. hafi mótmælt löngum fundarsetum.