23.05.1932
Neðri deild: 81. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2398 í B-deild Alþingistíðinda. (11464)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (JörB):

Það er ekki á mínu færi að svara þessari fyrirspurn hv. þm. N.-Ísf., en nokkra hugmynd getur hann gert sér um þetta af því, sem ég sagði aðan um afgreiðslu frv. um breyt. á jarðræktarlögunum. Ég tók það fram í sambandi við það mál, að þegar nál. um það var gefið út, 7. þ. m., þá bjóst ég ekki við, að þingið stæði lengur en fram að hvítasunnu. Annars verður stj. að segja til um það, hvenær búast má við þinglausnum.

II. Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir.

Á 17. fundi í Nd., 1. marz, utan dagskrár, mælti