12.03.1932
Neðri deild: 27. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2407 í B-deild Alþingistíðinda. (11473)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Að því er snertir síldarsöluna vil ég taka það fram, að ég álít rétt, að það mál verði rætt hér, þegar til þessarar d. kemur frv. um síldareinkasöluna, sem Ed. hefir haft til meðferðar.

Þá get ég upplýst það, að ekki mun koma af hálfu stj. frv. um skipulag á saltfisksverzluninni að þessu sinni.