04.06.1932
Sameinað þing: 12. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2428 í B-deild Alþingistíðinda. (11500)

Stjórnarskipti

Héðinn Valdimarsson:

Hæstv. dómsmrh. vildi ekki skilja síðustu fyrirspurnir mínar. Ætla ég því að endurtaka þær. Ef sakamálaákæran á hendur Eggert Claessen, Kristjáni Karlssyni, Sigurði Eggerz, Ólafi og Hauki Thors er komin fram, vildi ég vita, hvort málunum muni verða haldið áfram. Mér er sagt af sessunaut mínum, að verið geti, að hún hafi verið dregin til baka á síðustu stundu af fyrrv. stj., þótt óskiljanlegt megi virðast.