04.06.1932
Efri deild: 94. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2459 í B-deild Alþingistíðinda. (11546)

Kosningar

Forseti (GÓ):

hér er ekki um að tala nema ákvæði 3., 17. eða 43. gr. Og þegar svo er komið, að enginn hefir fengið meira en helming atkv., þá sjá dm., að við getum ekki látið þar við sitja og kosið engan forseta, bara fyrir það, að sumir dm. greiða ekki atkv. En ég vildi auðvitað heldur reyna atkvgr. enn og vita, hvort ekki greiðist úr þessu, svo að þrátti um þetta geti lokið, þótt mér sé það ljóst, hvaða leið verður að fara, ef sú úrslausn fæst ekki.