06.06.1932
Neðri deild: 99. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2463 í B-deild Alþingistíðinda. (11561)

Starfslok deilda

forseti (JörB):

Vér munum nú heyja þennan fund síðastan að sinni.

Ég mun ekki gefa skýrslu yfir störf þingsins, því hæstv. forseti Sþ. mun gera það, eins og venja er til.

Ég þakka hv. þdm. fyrir einkargóða samvinnu á þinginu og óska utanbæjarþingmönnum góðrar ferðar og góðrar heimkomu og að ver megum allir heilir hittast á næsta þingi.