22.04.1932
Efri deild: 57. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í B-deild Alþingistíðinda. (122)

1. mál, fjárlög 1933

Jón Baldvinsson:

Ég hefi stundum orðið til þess áður að hefja hér eldhúsumr., en þar sem umr. um aðalmál þessa þings, stjórnarskrármálið, var útvarpað, og það mál vafalaust hefði meira og minna blandazt inn í eldhúsumr., mun ég játa eldhúsumr. falla niður frá minni hálfu að þessu sinni. Er þetta að vísu ekki svo að skilja, að ég hafi ekki bæði margar og miklar aðfinnslur fram að bera við stj., og má því vel vera, að ég fari í eldhúsið við síðari umr. fjárl. hér í deildinni, en það hefir stundum verið gert, að hefja slíkar umr. við 3. umr. fjárl.