03.03.1932
Neðri deild: 19. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1443 í B-deild Alþingistíðinda. (1244)
55. mál, ríkisskattanefnd
Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:
Það hefir verið lögð mikil áherzla á það af hv. tveimur þm., andstæðingi og stuðningsmanni stj., að það sé ekkert að marka, hvað ég hafi haldið fram um kostnað við ríkisskattanefndina, og alveg eins, þó að binda eigi kostnaðinn að miklu leyti með fjárlögum. Ég veit ekki, á hverju þessir hv. þm. vilja yfirleitt taka mark í slíkum efnum, ef þeir treysta sér ekki til að byggja neitt á ákvæðum fjárl. eða því, sem sagt er úr ráðherrastóli, ef þeir vilja ekki taka mark á neinu nema þeim útblásna líknarbelg, sem þeir vilja gera úr þessu frv. Ég sé yfirleitt ekki, hvernig slíkir menn þora að fylgja nokkrum sköpuðum hlut, sem þannig umhverfa fyrir sér málefnunum.
Ég hefi engu að bæta við þau rök, er ég áður hefi fært fram með þessu frv. Ég skal aðeins endurtaka þá fullyrðingu, að hægt sé að ráða við þessi útgjöld með ákvæði í fjárl., og það verður að treysta stj. til þess að hafa hemil á útgjöldunum. Það, sem ekki má fresta að lagfæra, verður að sjálfsögðu látið sitja fyrir. Ég hefi margsinnis tekið það fram, að öðru en því allra nauðsynlegasta eigi að fresta til betri tíma. Ég verð að segja það, að mér finnst dálítið hart að fá harðvítugar árásir fyrir eyðslu í sambandi við þetta frv., sem er fram borið í heim tilgangi að vernda tekjur ríkissjóðs.
Ég ætla ekki að svara einstökum ummælum hv. ræðumanna. Ég býst við, að það liggi fyrir mér á þessu þingi að þurfa að vega í tvær áttir. Þó hv. þm. Borgf. bjóði mér liðveizlu sína til sparnaðar, þá býst ég ekki við að geta þegið hana nærri alltaf. Og þegar hinir, sem vinstra megin standa, flytja till., sem eiga að stefna í viðreisnarátt, þá býst ég við, að það geti komið fyrir, að ég telji mér skylt að vega einnig í þá átt.
Ég bjóst við því, þegar ég tók við þeirri stöðu, sem ég nú er í, að ég máske þyrfti að vega til beggja hliða. Ég var ráðinn í því að reyna að draga úr ópunum til hægri og vinstri og fylgja 100% kröfum frá hvorugri hlið.