03.03.1932
Neðri deild: 19. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1445 í B-deild Alþingistíðinda. (1247)
55. mál, ríkisskattanefnd
Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:
Það er aðeins örlítil aths. til hv. þm. V.Húnv. Ef bundið er með lögum að vinna eitthvert tiltekið starf og tiltekin fjárveiting í því skyni tekin upp í fjárlög, þá er fjmrh. við það bundinn að greiða ekki meira en veitt er, og auðvelt fyrir hann að halda sér við það. En um kostnað við stjórnarráðið er allt öðru máli að gegna. sá kostnaður er ekki fastbundinn, heldur er þar um áætlunarupphæð að ræða, og greiðist þá kostnaðurinn eftir reikningi, sem ráðuneytið úrskurðar.
Öðru í ræðu hv. þm. V.-Húnv. ætla ég ekki að svara, og því síður að spá neinu um það, hvað lengi ég verð í þeirri stöðu, sem ég nú skipa. En skjóta vil ég því til hv. þm., að það er á valdi hans og annara flokksbræðra minna að stytta embættisaldur minn. (ÓTh: Er þetta áskorun?). Já, að því leyti, að ef mér er ekki lengur treyst til þess að fara með þetta starf, þá vil ég, að það komi fram í ráðstöfunum þingmanna.
Annars þarf hv. þm. ekki að vera hræddur við mat ríkisskattanefndarinnar. Hún metur hvorki hann né aðra sem þingmenn. En því hefi ég tekið áreitni hans illa, að hann hefir með ræðum sínum viljað reyta af ríkissjóði tekjur, sem unnt er að afla að óbreyttri löggjöf.