08.03.1932
Neðri deild: 23. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (1249)
55. mál, ríkisskattanefnd
Frsm. (Halldór Stefánsson):
Á þskj. 112 hefir meiri hl. fjhn., sem stoð að flutningi þessa frv., komið fram með brtt. út af þeim aths., sem gerðar voru við 1. umr. þessa máls hér í deildinni, og ætla ég, að hv. þdm. hafi kynnt sér efni þeirra. Við 1. umr. þótti vera nokkur vafi á því, hvort væntanlegir aðstoðarmenn ríkisskattan. væru bundnir þagnarskyldu samkv. ákvæðum frv. Ákvæði frv., sem að þessu lúta, ber að skilja á þann veg, að þessir menn séu bundnir sömu þagnarskyldu sem skattanefndarmenn. það var tilgangurinn, en fyrst á því þykir geta leikið vafi, þótti n. rétt að bera fram brtt., er tæki af allan vafa í því efni. Við 1. umr. var einnig allmikið umtal um hann kostnað, er kæmi á ríkissjóð vegna skipunar þessarar n. Voru skiptar skoðanir um það, hversu mikill hann yrði. Töldu ýmsir, að hann yrði allmikill og þótti af heim ástæðum athugavert að láta stj. ákveða n. þóknun fyrir störf hennar. Í samráði við fjmrh. flytur meiri hl. n. því brtt. um aðra orðun á 9. gr. frv., þar sem ákveðið er, að kostnaður vegna ríkisskattan. skuli ákveðinn í hvers árs fjárl., í stað þess, að í frv. var stj. heimilað að ákveða hann. Ég hygg, að ég þurfi ekki að gera nánari grein fyrir þessu vegna þeirra miklu umr., sem urðu um þessi atriði við 1. umr. málsins.