08.03.1932
Efri deild: 23. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1471 í B-deild Alþingistíðinda. (1303)

27. mál, forkaupréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o.fl.

Pétur Magnússon:

Eins og sjá má á þskj. 100, hefi ég lagt á móti því, að frv. þetta nái fram að ganga. Málið hefir verið hér til umr. á tveim síðastl. þingum, og þá hefi ég gert grein fyrir, á hverju ég byggi andstöðu mína við það, og ég sé ekki ástæðu til að endurtaka þau rök nú, en læt mér nægja að vísa til þess, sem ég áður hefi sagt.