27.04.1932
Efri deild: 61. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1492 í B-deild Alþingistíðinda. (1380)

137. mál, póstlög

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Frv. þetta er komið aftur frá Nd., og hefir hún gert á því 2 lítilfjörlegar breytingar. Samgmn. þessarar hv. d. hefir athugað frv. af nýju, og telur hún breyt. þessar svo smávægilegar, að ekki sé ástæða til annars en að samþ. frv. eins og það liggur nú fyrir.