18.04.1932
Efri deild: 54. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1544 í B-deild Alþingistíðinda. (1530)
351. mál, ríkisborgararéttur
Dómsmrh. (Jónas Jónsson) [óyfirl.]:
Ég býst við, að það væri mjög eðlilegt, eins og hv. 1. landsk. hefir stungið upp á, að skrifstofustjórinn, sem hefir haft þetta með höndum undanfarin ár, geri einhverjar till., sem n. geti svo athugað, hvort hún vildi leggja fyrir d. Út frá þessu vil ég því óska, að málið verði tekið út af dagskrá í þetta skipti.