06.05.1932
Neðri deild: 68. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1558 í B-deild Alþingistíðinda. (1580)
490. mál, Jöfnunarsjóður
Hannes Jónsson:
Ég held, að sá tilgangur, sem ætlazt er til, að þetta frv. hafi, náist varla með því eins og það er. Það eru ákvæði 1. gr., sem mér finnst, að muni verða þess valdandi, að ekkert fé geti safnazt í sjóð hjá ríkinu sjálfu. Þegar þetta frv. kæmi til framkvæmda, verður sennilega svo ástatt, að lítið eða ekkert fé verður til í sjóði hjá ríkinu, og hefir það þá ekkert til þess að fleyta sér á fram yfir hver aramót. En ég hygg, að venjulegast verði ekki komizt af með minna en 35 millj. kr. til þess. Hafi ekki ríkið þá upphæð fyrirliggjandi í sjóði frá ári til árs, verður það að taka lán til þess að fleyta sér yfir hver áramót.
Mér virðist, að það þyrfti að vera gert ráð fyrir því í þessum 1., að ríkið hefði óbundnar hendur til þess að safna ákveðinni upphæð í sjóð ríkisins, áður en farið væri að binda þennan tekjuafgang. Mér dettur í hug, að nauðsynlegt væri að hafa t. d. 25% af tekjum ríkisins í sjóði við hver áramót. Sit upphæð þyrfti að safnast hjá ríkinu, svo að það þyrfti ekki lán til þess að fleyta sér yfir áramótin. Það er galli á þessu frv., að ekki skuli mega nota jöfnunarsjóðinn í þessum tilgangi, og þyrfti að breyta því svo, að ef ekkert yrði til í ríkissjóði um áramót, mætti nota þennan sjóð til þess að fleyta ríkissjóði yfir áramótin.
Þá ætla ég að gera nokkrar aths. við 2. gr. Mér sýnist hún ekki geta staðizt, eftir núverandi formi landsreikninganna. Hér er tekið fram, að verði tekjuhalli á rekstrarreikningi ríkisins, skuli hann greiðast úr jöfnunarsjóði. En það getur orðið tekjuafgangur á rekstrarreikningnum, þó að verði tekjuhalli á sjóðsyfirlitinu. Rekstrarreikningurinn sýnir aðeins afkomuna á ríkisrekstrinum, en allar eignahreyfingar eru þar fyrir utan.
Það þarf fé til þess að standast þær framkvæmdir, sem ákveðnar hafa verið, þó að greiðslan sé færð á sjóðsyfirlitið. Mér hefir dottið í hug að raða bót á þessu með því að bera fram skriflega brtt. þess efnis, að ef rekstrarhalli verði meiri en svo, að hægt sé að greiða hann úr sjóði frá fyrra ári, þá eigi að taka það, sem á vantar, úr jöfnunarsjóði. Ég vil, að 2. gr. sé orðuð alveg upp, og tel það nauðsynlegt, ef lögin eiga að koma að verulegu gagni.