23.04.1932
Neðri deild: 58. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1617 í B-deild Alþingistíðinda. (1661)
36. mál, skipun læknishéraða, verksvið landlæknis og störf héraðslækna
Jón Auðunn Jónsson:
Út af till. hv. 2. Skagf. vil ég geta þess, að mér koma þær ekki á óvart. Eins og ég gat um við 2. umr. málsins, hefir ávallt verið mikil deila þarna í Nauteyrarhéraði bæði um læknissetur, stærð hérðsins o, fl. En það er eðlilegt, að íbúar Súðavíkurhrepps séu óánægðir með að falla undan Ísafjarðarlæknishéraði, sérstaklega vegna þess, að þeir búast e. t. v. við, að þeir þurfi að einhverju leyti að standa undir þeim kostnaði, sem bygging læknissetursins hefir í för með sér. Hinsvegar eru í frv., eins og það liggur fyrir, ákvæði, sem tryggja þeim, að þeir hafi jafnt tilkall til Ísafjarðarlæknisins og áður. Um hina till., að láta atkvgr. innan héraðs ráða vali læknissetursins, er það að segja, að hún er sanngjörn. Sú leið hefir ekki verið farin í málinu, heldur hefir jafnan verið reynt með kosningu fulltrúa úr ýmsum hreppum að ná samkomulagi um læknissetur, en það hefir ekki tekizt, eins og réttilega er tekið fram í grg. frv. Hinsvegar virðist fyrirsjáanlegt, hvernig sú atkvgr. myndi falla, að óbreyttu því svæði, sem Nauteyrarhérað nú nær yfir, þar sem tveir fjölmennari hrepparnir hafa sent áskorun um það að hafa læknissetrið að Ögri, eins og frv. stingur upp á. Býst ég því við, að það myndi fara nokkuð á sama veg, en yrði heldur til þess, að menn sættu sig fremur við þessar breyt. Hinsvegar vil ég vænta þess, að tveim hreppum, og sérstaklega Nauteyrarhreppi, sem harðast verður úti við þessa breyt. á læknissetrinu, verði veittur nokkur læknisvitjanastyrkur, því að erfiðleikarnir á læknisvitjun verða miklir. Nauteyrarhreppur hefir reyndar í fjárl., eins og þau fóru héðan úr d., nokkurn styrk, en ég vænti, að hann verði hækkaður og styrk til Reykjarfjarðarhrepps bætt inn í fjárlfrv.
Annars þykist ég sjá, að frv. verði samþ. eins og það. liggur fyrir. Hefi ég því ekki fleiri orð um brtt. eða málið í heild, því að mér eru þegar kunn afdrif þess hér í d. Þau munu hafa verið ákveðin, áður en frv. var lagt fram.