14.04.1932
Neðri deild: 51. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1636 í B-deild Alþingistíðinda. (1695)

217. mál, flugmálasjóður Íslands

Flm. (Guðbrandur Ísberg):

Ég hafði hugsað mér að fylgja þessu frv. úr hlaði með nokkrum orðum, en þar sem ég á sæti í þeirri n., sem væntanlega fær málið til meðferðar, get ég eftir atvikum látið mér nægja að vísa til grg. frv., og leyfi mér að leggja til, að frv. verði vísað til sjútvn. að umr. lokinni.