29.04.1932
Neðri deild: 63. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1669 í B-deild Alþingistíðinda. (1713)

217. mál, flugmálasjóður Íslands

Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):

Ég vil leyfa mér að mælast til þess f. h. meiri hl. sjútvn., að þetta mál verði tekið af dagskrá nú. Málið sætti þeirri meðferð við 2. umr., að ég ætla, að ýmsa þm. muni iðra hennar, og þar sem ekki er ólíklegt, að einhver leið muni finnast til þess að leysa málið, er það ósk meiri hl., að málið verði tekið út af dagskrá að þessu sinni.