29.04.1932
Neðri deild: 63. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1671 í B-deild Alþingistíðinda. (1721)

217. mál, flugmálasjóður Íslands

Forseti (JörB):

Það er óhæft að innleiða slíkar umr. sem þessar viðvíkjandi afgreiðslu mála. Ég ætla að það sé bezt til fallið, þar sem ágreiningur er svo mikill um þetta atriði, að miðla þannig málum, að þetta mál verði tekið út af dagskrá að þessu sinni, en ég mun taka það sem fyrsta mál á dagskrá á morgun.

Er málið hér með tekið af dagskrá.

Á 64. fundi í Nd., næsta dag, var frv. aftur tekið til 3. umr. (A. 217).