04.05.1932
Neðri deild: 67. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1825 í B-deild Alþingistíðinda. (1874)

600. mál, skattgreiðsla h/f Eimskipafélags Íslands

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Þetta mál er kunnugt frá fyrri þingum, og hefir því jafnan verið tekið vel. Ég hygg, að allir muni vera sammála um, að eins mikil þörf sé og áður að veita Eimskipafél. þau hlunnindi, sem það hefir haft, og að ég þurfi því ekki að hafa fleiri orð um þetta.