12.05.1932
Efri deild: 73. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1854 í B-deild Alþingistíðinda. (1931)

165. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað

Jón Baldvinsson:

Mér skilst, að með brtt. n. sé nokkur takmörkun gerð á frv. eins og það nú liggur fyrir og samþ. var í Nd. En ég skal ekki fara nánar út í það. Hitt vil ég benda á, að vel getur svo farið, að frv. nái ekki afgreiðslu nú, ef það á að fara að hrekja það milli deilda. Ég mun því greiða atkv. móti brtt.