03.06.1932
Neðri deild: 92. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í B-deild Alþingistíðinda. (194)

1. mál, fjárlög 1933

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Mér skilst, að hv. þm. sé að veita okkur ákúrur fyrir, að við studdum Framsóknarflokkinn, og þess vegna þurfi hann nú að hrista okkur af sér og sparka í okkur. Þetta þykir mér það skringilegasta af því öllu saman.