06.06.1932
Efri deild: 96. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 579 í B-deild Alþingistíðinda. (208)

1. mál, fjárlög 1933

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Eftir ummæli hv. 2. þm. Árn. vil ég gera mér góðar vonir um, að ég beri gæfu til að draga hann inn í flokkinn aftur, og mun þá ekki standa á þeirri góðu samvinnu, sem kannske hefir vantað af hans hálfu á þessu þingi.

Hv. þm. tók svar mitt fullgilt, og kann ég honum maklegar þakkir fyrir þá umhyggju, sem hann hefir sýnt mér í þessu efni.