28.04.1932
Neðri deild: 62. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1940 í B-deild Alþingistíðinda. (2153)

528. mál, reksrarlán fyrir Útvegsbanka Íslands h/f

Jónas Þorbergsson:

Þar sem mér virtist hæstv. fjmrh. vilja draga í efa, að ég hefði borið fyrirspurn mína fram á réttum vettvangi, skal ég taka það fram sem mína skoðun, að um leið og þingið gerði þá ráðstöfun, sem var bundin því skilyrði, er ég nefndi, þá var skilyrðið um leið orðið þingmál. Ég tel því, að ég hafi borið fyrirspurn mína fram á réttum vettvangi.