14.05.1932
Efri deild: 75. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2072 í B-deild Alþingistíðinda. (2362)

645. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Halldór Steinsson:

Ég skil ekki, að hæstv. fjmrh. geti fundið „opposition“ í þessu hjá mér. Það er af því, að ég tel málið svo mikilvægt, þar sem hér er um að ræða margra millj. króna lán fyrir ríkissjóð, að ég tel það ekki farsællegt að hleypa því gegnum deildina án þess að það hafi fyrst farið til n.