30.03.1932
Neðri deild: 38. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2127 í B-deild Alþingistíðinda. (2452)

38. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa

Jóhann Jósefsson:

Ég vildi aðeins bera fram mótmæli gegn 2. gr. þessa frv. samkv. beiðni bæjarstj. í Vestmannaeyjum. Það er mjög auðsætt, að erfitt yrði fyrir bæjarfélög að framkvæma skipulagsáætlanir sínar, ef þetta ákvæði yrði samþ. Ég mun því greiða atkv. með brtt. hv. þm. Borgf. á þskj. 236.