30.03.1932
Neðri deild: 38. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2131 í B-deild Alþingistíðinda. (2455)

38. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Ég skal ekki tala langt mál. Ég vildi aðeins styðja till. hv. þm. Borgf. um að fella niður 2. gr. Og ég skal bæta því við, að skipulagsnefndin öll, sem mest hefir starfað að þessum málum, hefir lýst yfir því, að ef 2. gr. nái fram að ganga, muni ekki verða neitt gagn að því að hafa nokkur lög um þetta efni. Hún er öll sannfærð um það.

Ég sé svo ekki þörf á að segja meira, því það er allri þd. kunnugt, að með þessari gr. er verið að leysa upp skipulagið. Það er þess vegna hér verið að greiða atkv. um það, hvort skipulagið eigi að haldast eða ekki.