04.06.1932
Efri deild: 94. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í B-deild Alþingistíðinda. (257)

2. mál, fjáraukalög 1930

Jón Þorláksson:

Ég hefi ekki skilað neinu nál. um þetta frv., en ég er því mótfallinn . Það stendur í því sambandi við LR. fyrir 1930, að í þessu frv. felst heimild fyrir ríkisstj. til greiðslu á ýmsum af þeim upphæðum, sem taldar eru til útgjalda í þessum LR., en ekki hafa verið veittar í fjárl. Og þar sem ég get ekki fallizt á að samþykkja LR. fyrir 1930, mun ég ekki heldur greiða þessu frv. atkv.